707. [entries|friends|calendar]
árni grétar.

[ userinfo | livejournal userinfo ]
[ calendar | livejournal calendar ]

[01 Mar 2010|01:44am]
Photobucket

"sounds like somebody's got a case of the mondays!" - eydís á facebook.
og það var rétt hjá henni, systir minni. ég var að vorkenna sjálfum mér.
það breyttist þegar beta & jói komu í heimsókn til mín. elska ykkur. takk!
sofnaði eftir að hafa stiklað með ómari um landið. korn flakes, mjólk & sykur.

Mottumars genginn í garð! Þú ert ekki maður með mönnum
ef þú safnar ekki mottu í mars!
Karlmenn og Krabbamein.is. já, ég er með mottu!

stelpur, stelpur og bjössi. ný lög og meira til.
þetta er fínt. kláraði að gera myndirnar fyrir gunnar rafn.
peace out.

[28 Feb 2010|11:50pm]
Photobucket

sendi skilaboð. gott að vera laus. eins og phil collins sagði,
"though we might hate to admit it, there are always two sides to every story."

hjálpaði móatún 8 fjölskyldunni að flytja í nýja húsið. bæ bæ stigahlíð.
ég elska sunnu - gott að liggja í sófanum. heima er best.
matur á freyjugötunni. mmm, takk fyrir mig. 80's kynnti nýja strákinn.
fór á shutter island með óla, gunnari og bogga.
magnaðasti sálfræðitryllir sem ég hef séð.

kláraði að lesa halastjörnuna (ævintýri múmínálfanna). ávallt góð!

[27 Feb 2010|11:35pm]
Photobucket

var heima að skúrkast í tónlist, þökk sé skúrkinum. acid hverfisgata - rúm.
fór aðeins út og sótti gunnar smára og halla og heilsaði upp á óla og önnu.
reykt síld. nammi mar! raggi kíkti í heimsókn og reyndi að draga mig út.
heilsaði upp á sófann og kelaði við tölvuna. hlustaði á sk/um í þágu fallsins.

heima er best.

[26 Feb 2010|04:20pm]
26-02-10

föstudagurinn stutti. það er svo gaman að vakna með jóa sínum.
vigdís gaf mér facebook art í ramma. gaman af þessu öllu saman.
bjarni kom í kaffi og við stigum fyrstu þrjú sporin saman. ótrúlegt.
fór í heimsókn til jóa skurken. hann og litla fjölskyldan voru hress.
skúrkurinn bakaði flatbökur og kenndi mér að blanda saman hljóðum.
yndislegt að eiga góða vini.

baldvin er góður.

[25 Feb 2010|04:16pm]
25-02-10

rosa fínn fimmtudagur. mikill snjór - festi bílinn ansi oft á selfossi.
jói kom til mín og við vorum ansi hressir saman. feðgar glaðir.
endaði eitt stutt á netinu. stutt en skemmtilegt. svona er ég.
helgi dagur, til hamingju með árin 30. "þú ert enn 23."

horfði á ómar í flatey (ekki okkar flatey).

[24 Feb 2010|09:52pm]
Photobucket

bjarni magg er kominn aftur. fórum á fund og spjölluðum saman.
bragi hress að vanda og ingólfur sagði langa sögu. pálmi er góður!
stelpa í eftirrétt og 'vesturgata 75'.
zzz.

[23 Feb 2010|09:36pm]
Photobucket

næs, það er þriðjudagur. fór í heimsókn til betu & jóa
og lék mér í dótinu.
fór í heimsókn til andra (hjá erlu) og hann lét mig fá
fullt af nýrri tónlist.
hann póstaði seinna um daginn nýju mixi - cold breeze.
mjög frábært!
stóri bíllinn er kominn og ég keyrði um með ekkert útvarp.
heim í zzz, núðlur og facebook samræður við vigdísi.
fór á rúntinn og meira. gaman af þessu!

tónlistin lengi lifi. hlustaði á lost & found með dj cam
& black castles ep með fur. takk fyrir mig, andri már.
næser dauðans.

[22 Feb 2010|11:35pm]
Photobucket

ætlaði að gefast upp og fara í sama gamla farið. en fór í staðinn á hnén og sættist.
ég er með verkfærin fyrir framan mig og ég á að nota þau á hverjum degi.
ekki bara í gær eða á morgun. lífið er núna, opnaðu augun.
fór með óla bróðir í sandgerði á fund um sjávarútvegsmál.
góður fundur. gott fólk.

áfram árni, áfram jói, áfram beta.

[21 Feb 2010|11:37pm]
Photobucket


átti góðan dag með jóa. við lékum okkur saman í kubbó og fórum í feluleik.
jói fór til mömmu sinnar og ég lagðist í sófann.
eitthvað svo tómur.

það er svo gaman að lesa bók með jóa.
það er svo gaman að tala við barnið sitt.

[20 Feb 2010|10:24pm]
Photobucket

annað rörið datt úr hjá jóa. litlu eyrun alltaf með vesen. jói er sterkur.
luke vibert lék við okkur í dag. vorum inni að "byggja hús" og "drekka djús".
fórum og keyptum okkur gullfisk. hann heitir Beaucoup og er appelsínugulur.
pabbi elskar þig, jóiminn.

kláraði að lesa skuggasjónaukann í gær.
rosalegt ævintýri.
opnum glugga.

[19 Feb 2010|09:48pm]
Photobucket

fórum með jóa til læknis. hann fór í aðgerð - fékk rör í eyrun. greyið litli!
vinna eftir hádegi. hveragerði (no money), selfoss (no money), rvk (no money).
arthur russell hjálpaði mér. við erum góðir félagar. hugmynd um lán.
náði í jóa til betu og keypti hamborgara handa honum. hann zzz snemma.
pabbi gamli líka þreyttur.

[18 Feb 2010|11:09pm]
Photobucket

fínn dagur með hljómsveitinni bandulu. sagði ósatt, fyrirgefðu.
kollsvíkurfélagið sleikti toppinn á Esjunni.
þrír bræður og einn frændi.
gaman.

mikið að gera í tónlistarlífinu.

[17 Feb 2010|11:49pm]
Photobucket

appelsínugulursvaliogostaslaufa-dagur. vodafone kaffi hjá svenna.
hveragerði - sat í bílnum með kristjáni gamla til rvk. bla bla um pólitík.
borðaði pizzu með jóa og hjálpaði betu með nýja sófan. gaman saman!
góður fundur. fékk edrúpening í vasann og drakk ágætt kaffi. kúkaði.
skvir-aðist með bjössa á kaffibarnum. hitti ragga, ásu og hödda. stuð!
sms eru ekki góð kl. 23. gott að vera heima.
esjan á morgun.

p.s. 'plainsong' repeat. samdi líka lítið lag.

[16 Feb 2010|11:46pm]
hide away #2

þriðjudagur með eyrun í framsætinu. fórum með jóa til læknis.
duglegi strákurinn okkar kvartar ekkert þrátt fyrir mikla eyrnarbólgu.
(förum aftur á föstudaginn í aðgerð - vonandi batnar þetta þá).
kíkti í biokaffi. skemmtilegar umræður um weirdcore lífið.
hlustaði á polyfusia með seefeel. meistaraverk. gaman að týnast í bílnum.
mick chillage var ánægður með futuregrapher. gaman að þessu.
harmageddon - allt að gerast. besti útvarpsþátturinn.
sofnaði og vaknaði með núðlur í maganum. las í bókinni með braga.
gott að hjálpa.

[15 Feb 2010|11:46pm]
Photobucket

það var mjög gott að sofna með hákoni gamla. zzz er fallegt.
fínn mánudagur. hellti niður kaffi hjá betu & jóa og borðaði kökur. takk!
hlustaði á speaking in tongues með talking heads og leitaði af gulu húsi.
lá í sófanum í allan dag. móri vs. erpur. áhugavert. mmm núðlur.
mick chillage - 'soul ideals (rework by futuregrapher)'. ég er ánægður.
stundum þarf maður að hvíla sig á símanum.
ring ring óli hjörtur.

[14 Feb 2010|10:25pm]
Photobucket

svaf lítið. þvottavéladagur + bókasafnið. fékk bollur hjá óla & önnu. takk.
kíkti í heimsókn til jóa & betu. gaman að hitta litlu englana mína. "traktor!"
byrjaði að gera remix af 'soul ideals' með mick chillage. virðing.
lá í sófanum, horfði á stiklur, hékk á facebook og surfaði á netinu.
classic sunnudagur.

sendi steve sampling, skurken, yoda remote & tonik fælana fyrir næstu EP.
'acid hverfisgata (kjarnamix)'. woot woot.

[13 Feb 2010|06:09am]
Photobucket

stiklur - þættir af mýrum og melasveit. yndislegt að ferðast með ómari.
erfitt símtal. ég gat ekki meira, því miður. ég vil helst vera einn.
heilsaði upp á betu & jóa ("bæ" broskall) og drakk kaffi heima hjá gunna.
þorrablót brottfluttra tálknfirðinga - gaman saman. mmm gott í maga.
weirdcore club night á batteríinu - næser dauðans.
biogen, quadruplos, dj andre, dj 3d & dj árni vector = massive.
takk fyrir mig, fallega fólk.

pan sagði mér sögur og ég brosti.
"lífið er gott."
amen.

p.s. gunni rafn er með fallegan tónlistarsmekk.
gunnar smári þarf að hlusta á meiri raftónlist.

[12 Feb 2010|01:23pm]
Photobucket

til hamingju með afmælið, pabbi gamli.

baunasúpa og maltesers. hitti ragga sveins.
sofnaði snemma og vaknaði með ómari ragnarssyni.
'yellow smile girl' í pósti.

[11 Feb 2010|02:02am]
Photobucket

góður dagur sem endaði í chilli hjá hemma & valda í boði pan & krumma.
vaknaði ferskur með jóa - við settum dark side of the moon á fóninn.
sony walkman vasadiskóið kom í dag með póstinum (sá veiruna).
hveragerði, ostur og talking heads. grátt en fallegt, rigningin er góð.
sofnaði í baðinu og mætti aðeins og seint í mat hjá jónasi & heather (takk).
hitti kjartan í 10-11 og kíkti í heimsókn á fálkagötuna.
hjá hemma & valda - vestfirskur trommusláttur frá bóndanum í lopapeysunni.
takk.

p.s. missti af götusmiðjunni. það átti bara að vera þannig.

[10 Feb 2010|11:00pm]
Photobucket

dagur í hjálp. bílinn hennar betu bilaði. jónas og bláir sófar.
hlustaði á clear your mind með bop. góð plata.
keypti miða á þorrablótið með hjálp. takk gunni rafn.
bankavesen. bankar eru ágætir. jói er nr. 1, 2 og 3.
borðaði núðlur með stráknum mínum. við vorum glaðir.
gaman að vera til. ég og bjössi erum að hugsa stórt.
a guy called gerald sendi mér skilaboð.
spennandi tímar.

navigation
[ viewing | most recent entries ]
[ go | earlier ]